top of page
  • White Facebook Icon
  • White Instagram Icon
RELAXED WASHED BRONZE

RELAXED WASHED BRONZE

24.990 kr.Price

Gallabuxur sem þola daginn — og líta vel út.

CAVEMAN Relaxed gallabuxurnar eru hannaðar fyrir þá sem vilja meira rými þar sem það skiptir máli — án þess að fórna útliti, þægindum eða hreyfigetu.

Við höfum unnið að CAVEMAN gallabuxunum í um það bil tvö ár. Prófað efni, endurhannað snið og fínstillt smáatriðin þar til allt varð nákvæmlega rétt.

Þetta snýst ekki um að gera enn einar gallabuxur. Þetta snýst um að búa til buxur sem virka í raunverulegu lífi, í vinnu, á ferðalögum og í frístundum.

 

Relaxed Fit

Relaxed sniðið er örlítið víðara en Regular sniðið og gefur meira rými yfir rass og læri. Það hentar sérstaklega vel þeim sem vilja rýmra snið eða eru með sterkari byggingu á lærum og rassi.

Þetta er afslappað snið með skýru CAVEMAN-útliti — þægilegt, snyrtilegt og tilbúið fyrir daginn eins og hann er.

 

Smáatriðin sem vinna með þér

  • Sérhannaðir símavasar á báðum hliðum
  • Super Stretch: teygjanlegt efni sem fylgir hreyfingum þínum
  • Rakadrægni sem hjálpar til við þægindi yfir daginn
  • Sérstaklega mjúkt efni
  • YKK rennilásar
  • Þrefaldir saumar á álagspunktum
  • Sérhannaðir hnappar og hnoð
  • Sjö beltalykkjur fyrir betri stuðning — sérstaklega í stærri stærðum

 

Efni og umhirða

  • 67% bómull
  • 19% pólýester
  • 12% rayon
  • 2% Lycra (spandex)

Þvottaleiðbeiningar: Þvoið á köldu prógrammi með svipuðum litum. Notið ekki mýkingarefni. Hengið til þerris. Mælum meða að setja þær ekki í þurrkara og strauja þær sem sjaldnast.

 

Hannaðar fyrir daginn eins og hann er

Hvort sem dagurinn fer í vinnu, akstur, ferðalag eða frítíma, eiga gallabuxurnar að halda í við þig. Þær eiga að sitja vel, hreyfast vel og líta vel út án þess að þú þurfir að hugsa um þær.

Niðurstaðan er einföld: Gallabuxur sem þú ferð í aftur og aftur. Þægindi fyrst. Ending alltaf.

 

Athugið – indigo litun

Buxurnar eru litaðar með indigo-bláum lit sem getur gefið frá sér, sérstaklega fyrstu þvottana. Þvottur með svipuðum eða dökkum litum er því mikilvægur. Forðastu að þvo þær með ljósum fatnaði fyrstu skiptin.

Indigo er lifandi litur — hann mýkist og fær sinn eigin karakter með notkun og þvotti.

Quantity

    SKILDAR VÖRUR

    © 2026 CAVEMAN®

    Smiðjuvegur 4, 200 Kópavogur, Ísland

    Sími: 6120808

    Öll verð - og lýsingar á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur.

    bottom of page