REGULAR INDIGO BRONZE
Gallabuxur sem þola daginn — og líta vel út.
CAVEMAN Regular gallabuxurnar eru hannaðar fyrir þá sem vilja klassískt snið sem situr vel, hreyfist með þér og virkar í daglegu lífi.
Við höfum unnið að CAVEMAN gallabuxunum í um það bil tvö ár. Prófað efni, endurhannað snið og fínstillt smáatriðin þar til allt varð nákvæmlega rétt.
Þetta snýst ekki um að gera enn einar gallabuxur. Þetta snýst um að búa til buxur sem virka í raunverulegu lífi, í vinnu, á ferðalögum og í frístundum.
Regular Fit
Regular sniðið er klassískt og hreint. Það situr snyrtilega án þess að þrengja of mikið að og gefur góða hreyfigetu yfir rass og læri. Þessar eru aðsniðnari en Relaxed sniðið og hentar þeim sem vilja örlítið mótaðra útlit — án þess að gefa eftir í þægindum.
Smáatriðin sem vinna með þér
- Sérhannaðir símavasar á báðum hliðum
- Super Stretch: teygjanlegt efni sem fylgir hreyfingum þínum
- Rakadrægni sem hjálpar til við þægindi yfir daginn
- Sérstaklega mjúkt efni
- YKK rennilásar
- Þrefaldir saumar á álagspunktum
- Sérhannaðir hnappar og hnoð
- Sjö beltalykkjur fyrir betri stuðning — sérstaklega í stærri stærðum
Efni og umhirða
- 67% bómull
- 19% pólýester
- 12% rayon
- 2% Lycra (spandex)
Þvottaleiðbeiningar: Þvoið á köldu prógrammi með svipuðum litum. Notið ekki mýkingarefni. Hengið til þerris. Við mælum með að setja þær ekki í þurrkara og strauja þær sem sjaldnast.
Hannaðar fyrir daginn eins og hann er
Hvort sem dagurinn fer í vinnu, akstur, ferðalag eða frítíma, eiga gallabuxurnar að halda í við þig. Þær eiga að sitja vel, hreyfast vel og líta vel út án þess að þú þurfir að hugsa um þær.
Niðurstaðan er einföld: Gallabuxur sem þú ferð í aftur og aftur. Þægindi fyrst. Ending alltaf.
Athugið – indigo litun
Buxurnar eru litaðar með indigo-bláum lit sem getur gefið frá sér, sérstaklega fyrstu þvottana. Þvottur með svipuðum eða dökkum litum er því mikilvægur. Forðastu að þvo þær með ljósum fatnaði fyrstu skiptin.
Indigo er lifandi litur — hann mýkist og fær sinn eigin karakter með notkun og þvotti.

































