top of page
  • White Facebook Icon
  • White Instagram Icon

UPPLÝSINGAR & SKILMÁLAR

BÝR OTS YFIR PERSÓNUUPPLÝSINGUM UM MIG?

Við söfnum persónuupplýsingum frá þér þegar þú lætur þær okkur í té beint og í gegnum notkun þína á heimasíðu OTSPORT.IS.

Þessar upplýsingar geta falið í sér:

  • Upplýsingar um viðskipti ef þú kaupir eitthvað á heimasíðu okkar (t.d. skrá yfir kaupin, upplýsingar um kreditkort / debetkort og afhendingarupplýsingar).

  • Skrár yfir samskipti þín við okkur (t.d. ef þú hefur samband við þjónustuteymi okkar eða ert í samskiptum við okkur á samfélagsmiðlum).

  • Upplýsingar sem þú gefur okkur þegar þú tekur þátt í leikjum eða könnunum frá okkur.

  • Upplýsingar sem sjálkrafa er safnað með því að nota vefkökur (cookies) og aðra tækni til að rekja ferðir þínar um síðuna (t.d. hvaða síður þú skoðar og hvort þú smellir á tengil í tölvupósti frá okkar) í þeim tilgangi að gera upplifun þína sem besta. Við gætum einnig safnað upplýsingum um tækið sem þú notar þegar þú heimsækir heimasíðu okkar. 

Þegar þú skráir þig á póstlista okkar þá samþykkir þú að OTS megi senda þér tölvupóst í markaðslegum tilgangi og gerð persónusniðs til beinnar markaðssetningar.

 

HVERNIG NÝTUM VIÐ PERSÓNUUPPLÝSINGAR UM ÞIG Í MARKAÐSLEGUM TILGANGI?

Við gætum notað persónuupplýsingar um þig til að senda þér skilaboð með tölvupósti. Sum þessara skilaboða kunna að vera sniðin að þér út frá prófíl þínum, uppflettingum þínum á heimasíðu okkar eða kaupum og öðrum upplýsingum sem við höfum um þig.

Ef þú vilt ekki lengur fá send skilaboð frá okkur getur þú breytt stillingum þínum hvenær sem er með því að hafa samband við okkur eða með því að „afskrá“ þig af póstlista okkar. Þú finnur „afskrá“ hnappinn neðst í þeim tölvupóstum sem við sendum þér.

Þegar þú hefur sagt upp áskriftinni gætir þú haldið áfram að fá tölvupóst frá okkur í nokkra daga meðan við vinnum úr beiðni þinni.

 

HVERNIG VERNDUM VIÐ UPPLÝSINGARNAR?

Öryggi persónuupplýsinga þinna skiptir okkur miklu máli. Við höfum sett upp tæknilegar og skipulegslegar ráðstafanir til að koma í veg fyrir óheimilan aðgang að persónuupplýsingum þínum. Upplýsingarnar eru vistaðar á öruggum netþjónum og eru þær eingöngu skoðaðar þegar nauðsyn krefur. Takmarkaður fjöldi fólks hefur sérstakan aðgang að slíkum kerfum og er þess krafist að þau haldi fullum trúnaði. Allar upplýsingar um kredit og debetkort sem þú sendir fara í gegnum svo kallaða SSL-tækni og eru síðan dulkóðuð í gagnagrunni okkar.

Þó að við höfum gert okkar besta við að tryggja öryggi persónuupplýsinga þinna skaltu vera meðvituð/aður um að við getum ekki ábyrgst öryggi upplýsinga sem sendar eru í gegnum internetið

HEILSÖLU VIÐSKIPTI

Vinsamlega sendið fyrirspurnir um fyrirtækjasölu / heildsölu viðskipti  hér.

GREIÐSLU LEIÐIR

​- Kredit / Debit kort

- Greiða á staðnum

bottom of page