top of page
  • White Facebook Icon
  • White Instagram Icon
REGULAR WASHED BRONZE

REGULAR WASHED BRONZE

24.990 kr.Price

Gallabuxur sem þola daginn — og líta vel út.

CAVEMAN Regular gallabuxurnar eru hannaðar fyrir þá sem vilja klassískt snið sem situr vel, hreyfist með þér og virkar í daglegu lífi.

Við höfum unnið að CAVEMAN gallabuxunum í um það bil tvö ár. Prófað efni, endurhannað snið og fínstillt smáatriðin þar til allt varð nákvæmlega rétt.

Þetta snýst ekki um að gera enn einar gallabuxur. Þetta snýst um að búa til buxur sem virka í raunverulegu lífi, í vinnu, á ferðalögum og í frístundum.

 

Regular Fit

Regular sniðið er klassískt og hreint. Það situr snyrtilega án þess að þrengja of mikið að og gefur góða hreyfigetu yfir rass og læri. Þessar eru aðsniðnari en Relaxed sniðið og hentar þeim sem vilja örlítið mótaðra útlit — án þess að gefa eftir í þægindum.

 

Smáatriðin sem vinna með þér

  • Sérhannaðir símavasar á báðum hliðum
  • Super Stretch: teygjanlegt efni sem fylgir hreyfingum þínum
  • Rakadrægni sem hjálpar til við þægindi yfir daginn
  • Sérstaklega mjúkt efni
  • YKK rennilásar
  • Þrefaldir saumar á álagspunktum
  • Sérhannaðir hnappar og hnoð
  • Sjö beltalykkjur fyrir betri stuðning — sérstaklega í stærri stærðum

 

Efni og umhirða

  • 67% bómull
  • 19% pólýester
  • 12% rayon
  • 2% Lycra (spandex)

Þvottaleiðbeiningar: Þvoið á köldu prógrammi með svipuðum litum. Notið ekki mýkingarefni. Hengið til þerris. Við mælum með að setja þær ekki í þurrkara og strauja þær sem sjaldnast.

 

Hannaðar fyrir daginn eins og hann er

Hvort sem dagurinn fer í vinnu, akstur, ferðalag eða frítíma, eiga gallabuxurnar að halda í við þig. Þær eiga að sitja vel, hreyfast vel og líta vel út án þess að þú þurfir að hugsa um þær.

Niðurstaðan er einföld: Gallabuxur sem þú ferð í aftur og aftur. Þægindi fyrst. Ending alltaf.

Quantity

    SKILDAR VÖRUR

    © 2026 CAVEMAN®

    Smiðjuvegur 4, 200 Kópavogur, Ísland

    Sími: 6120808

    Öll verð - og lýsingar á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur.

    bottom of page