top of page

AFHENDINGARSKILMÁLAR & SKIL

AFHENDINGARSKILMÁLAR

Afhendingartími: 
2-3 dagar (Að sjáfsögðu eru undantekningar á því ef eitthvað kemur uppá, en við kappkostum um að afgreiða allarpantanir frá okkur á pósthús næsta virka dag)

Sendingakostnaður :  
Ef verslað er fyrir minna en kr 7500.- þá bætist við sendingarkostnaður sem er kr1250.- en ef verslað er fyrir kr 7500.- eða meira þá sendum við frítt innanlands.
Fyrir erlendar sendingar bætist við gjald samkvæmt verðskrá póstsins.

 
Sendingarþjónusta:
Vörurnar þínar verða sendar með Póstinum á pósthús eða póstbox nálægt heimilisfanginu þínu. Þú færð upplýsingar um hvert þú getur sótt pakkann í tölvupósti eða textaskilaboðum. Pósthúsið heldur pakkanum í 10 daga áður en hann verður endursendur til okkar, gjald fyrir endursendingar kr.1250.- dregst frá inneign sem kan að myndast ef pakki er ekki sóttur á réttum tíma á pósthús eða í póstbox.

VÖRUSKIPTI & SKILARÉTTUR

Vöruskipti
Viltu skipta um stærð eða lit á vörunni þinni? Hringdu einfaldlega í 6120808 innan 14 daga eftir að þú færð vöruna og við aðstoðum þig við að skipta henni.

Skilaréttur
Við skiljum að heimurinn er ekki fullkominn og stundum er pöntunin þín ekki það sem þú bjóst við. Eða skiptir þú kannski bara um skoðun? Hvort heldur sem er, bjóðum við uppá að þú getur skilað eða skipt vörunni í aðra að því gefnu að varan sé enn í upprunalegu umbúðunum, í söluhæfu ástandi með öllum merkingum áföstum. 
Þú getur skilað vörunni eða látið okkur vita að þú viljir skila henni innan 14 daga eftir að þú færð vöruna. Við vöruskil er gefin út inneignarnóta, inneignar nótur sem gefnar eru út eru ódagsettar.

"Reddum Jólunum" og aðrar Gjafir
Öll kaup á vörum sem eiga sér stað á "tilboðsdögum" t.d. "Reddum Jólunum" eða eru ætlaðar í gjafir verða merktar með skipti miða. 
Á meðan gjafir og vörur sem sendar eru beint úr verslun og eða eru pantaðar á netinu eru í upprunalegu ástandi og með öllum merkingum áföstum þá eru enginn tímamörk á hvernar þarf að vera búið að skipta, þó þarf varan að vera í vöruvali í verslun okkar og skiptum við þá á því verði sem hún kostaði á þeim degi sem hún var keypt.

Ef varan er dottin úr vöruvali þá tökum við hana ekki tilbaka né skiptum. Gjafir fást ekki endurgreiddar. 

 Endursendingar
Viðskiptavinur og sá/sú sem fær gjöf senda beint til sín frá verslun okkar ber allan kostnað við endursendingu vörunar við skipti.

Ef þú þarft að skila eða hefur spurningar varðandi skilin, þá þarft þú að hafa samband við okkur í síma 6120808 eða senda okkur tölvupóst HÉR

Vertu búinn að tala við okkur áður en þú sendir vöruna til okkar!
 
Endursending berist til:
CAVEMAN / 101Tactical ehf
Smiðjuvegur 4 (grængata)
200 Kópavogur
Ísland

bottom of page